Færslur: 2008 Ágúst

13.08.2008 22:31

Ísland vs Þýskaland

Nú í gær 13. ágúst fór ég með góða vini mínum Sergio (Ítalía) á strandblak. Ég hélt ég hefði keypt miða á strandblak kvenna en kom í ljós að þetta var blandað þannig að fyrst voru strákar að keppa og síðan stúlkur. Við vorum svo sniðugir þá að mæta k. 6 einmitt þegar þetta byrjaði og horfðum þá á leik.... hmm já ekki alveg viss en það voru einhver stráka lið, horfðum held ég á fjóra stráka leiki og eini sem ég man eftir að ráði var Ástralía vs Brazilia þvi Braziliu strákarnir voru svo fjandi góðir. Ég mætti kíki sem Sergio fannst rosalega fyndið en mér fannst bara rosa sniðugt í ljósi þess að sætin okkar voru lengst aftast alveg við skjáinn. Ég nýtti nú kíkinn ekkert það mikið nema í hléunum þegar klappstírurnar gengu inná. Eina annað sem mér finnst rétt að nefna var að Sergio sá pöddu... æ hvað heita þær, þessar sem hafa svo mikil læti í grasinu á næturnar þegar maður er að reyna sofa... þið vitið hvaða skordýr ég á við ef þið hafið farið til heitra landa... alla vega þá sá hann eina þannig detta að himnum ofan og liggja öfugt, hann nefndi við mig að prufa kasta glasa lokinu að henni og sjá hvað mundi gerast, ég prufaði það og hún skaust og og byrjaði að væla þessu leiðindar hljóði eins og þær gera allar en mér og Sergio brá svo allsvakalega að við gripum um hvorn annan og öskruðum í skelfingu... það vildi ekki betur en fara að allir kínverjarnir í kring litu þá á okkur og skildu ekkert hvað væri eiginlega á seiði. Ein ung telpa sá okkur öskrandi og horfandi á skordýrið og hvað haldiði að hún hafi gert... hún tók hana bara upp eins og ekkert væri. Jámmm... þið vitið restina, við litum út eins og verstu skræfur og kínverjarnir voru bara hugsandi... vá útlendingar eru skrítnir.

Nú eftir fjór mjööög langa leiki þá loks spilaði USA vs Cuba... strandblak kvenna :)

Þetta var kl. 10 minnir mig þannig að við höfðum beðið frá 6 til 10... 4 klst eftir að strandblak kvenna hefðist... þetta heitir á ensku "detication" leikurinn hófst og ekki urðum við svekktir, hörku leikur sem endaði í bráðabana en að lokum unnu þær bandarísku. Leikurinn þar á eftir að Þýskaland vs Póland en þá var klukkan orðin 11:20 og við vorum orðnir frekar þreyttir þannig að við ákváðum að bíða eftir að þær gengu inná, ná nokkrum myndum og segja það svo gott.

Allt í allt mjög skemmtileg stemming þar sem þetta er nú eins og rokktónleikar, í hvert skipti sem það er skorað kemur bútur af stuð lagi sem glymur um all og áhorfendur fengnir til að syngja með osfrv. Svo voru nokkrar bylgjur gerða o.fl þannig að þetta var bara svaka stuð.

Ég er að fara í 14. ágúst á Ísland vs Kórea (áfram Ísland!) og á föstudaginn sé ég Þormóð keppa í Júdói. Meira veit ég ekki en reyni að pósta hérna ef eitthvað gerist.

og já, vert að nefna að ég sá sjálfan mig á skjánum í leiknum Ísland vs Þýskaland þannig að ef það er endursýning þá kannski getið þið komið auga á mig.
  • 1
Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 11
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 53389
Samtals gestir: 21071
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 18:32:22
eXTReMe Tracker